Skógareldar í Norðvestur-Ontario
Airbnb.org veitir fólki sem hefur neyðst til að yfirgefa heimili sín vegna skógarelda í Norðvestur-Ontario gjaldfrjálst neyðarhúsnæði.Nær 200 virkir skógareldar geisa nú á svæðinu, knúnir áfram af gífurlegum hita og miklum vindi og þar af eru 69 þeirra enn stjórnlausir. Fólki hefur verið gert að rýma sex byggðarlög, þar á meðal Armstrong og nokkur byggðarlög frumbyggja og tilkynnt hefur verið um umfangsmikið tjón af völdum eldanna í Collins First Nation. Airbnb.org vinnur með Ontario SPCA & Humane Society að því að aðstoða íbúa sem hafa þurft að yfirgefa heimili sín og gæludýr þeirra meðan á þessu neyðarástandi stendur.Ef þú hefur þurft að yfirgefa heimili þitt vegna skógareldanna og þarft að óska eftir neyðarhúsnæði getur þú haft beint samband við Ontario SPCA & Humane Society í síma 1-888-668-7722 eða með tölvupósti á EmergencyResponse@ontariospca.caÍbúar sem hafa orðið fyrir áhrifum skógareldanna geta sótt beint um húsaskjól, að því tilskildu að aðalheimili þeirra sé á rýmingarskyldu svæði og hægt sé að staðfesta auðkenni þeirra. Þú þarft að vera með aðgang að Airbnb til að hægt sé að staðfesta auðkenni þitt. Hafir þú ekki aðgang getur þú stofnað hann hér. Ef yfirvöld hafa aðeins gefið út viðvörun um mögulega rýmingu uppfyllir þú ekki skilyrðin fyrir neyðarhúsnæði í gegnum Airbnb.org að svo stöddu.
Þú getur styrkt Airbnb.org ef þú vilt hjálpa til við að útvega fólki sem hefur þurft að líða fyrir skógareldana gistingu að kostnaðarlausu. Allir styrkir renna óskiptir til fjármögnunar á neyðarhúsnæði. Ef þú ert gestgjafi á Airbnb getur þú skráð þig til að bjóða fólki í vanda gistingu með afslætti. Airbnb gefur þjónustugjöld gestgjafa til Airbnb.org fyrir slíka gistingu og sér til þess að gestgjafar njóti verndar AirCover fyrir hverja bókun.