Leggðu þitt af mörkum sem gestgjafi
Neyðarhúsnæði í gegnum Airbnb.org gerir gestum kleift að finna skammtímagistingu á heimilum líkt og þínu vegna hamfara eða neyðartilvika, eins og ferðalaga til að sækja sér nauðsynlega læknisþjónustu.

Hvernig gestaumsjón nýtist
Þegar þú skráir eign á Airbnb geta gestir Airbnb.org bókað hana ef þörf er á.

Líkt og önnur gisting
Airbnb.org fjármagnar neyðargistingu fyrir fólk sem á henni þarf að halda og því fá gestgjafar greitt eins og venjulega.

Sambærileg vernd
Gisting á Airbnb.org gengur fyrir sig eins og önnur gisting á Airbnb með staðfestum aðgöngum og AirCover.

Sérhæfðir þjónustufulltrúar
Gestgjafar fá aðgang að sérhæfðu þjónustuveri þegar um gistingu hjá Airbnb.org er að ræða.
Fleiri leiðir til að hjálpa
1 af 1 síðum
Samfélagið okkar
Gestgjafar um allan heim hafa hjálpað Airbnb.org að útvega 1,6 milljónir gistinátta í neyðarhúsnæði frá árinu 2020.
Samfélagið okkar
Gestgjafar um allan heim hafa hjálpað Airbnb.org að útvega 1,6 milljónir gistinátta í neyðarhúsnæði frá árinu 2020.

Hvernig við gætum hagsmuna þinna
Hvernig við gætum hagsmuna þinna
1 af 1 síðum
Gagnleg úrræði fyrir gestgjafa
Gagnleg úrræði fyrir gestgjafa
1 af 1 síðum
Heyrðu frá öðrum gestgjöfum eins og þér
Lestu frásagnir raunverulegra gestgjafa Airbnb.org og fólksins sem þeir hjálpuðu í kjölfar hamfara eða annars neyðarástands.
1 af 1 síðum
Algengar spurningar frá gestgjöfum
Fæ ég samt greitt fyrir gistingu hjá Airbnb.org?
Já, gestgjafar fá greitt rétt eins og fyrir aðrar bókanir þar sem Airbnb.org greiðir fyrir neyðargistinguna.
Þarf ég að huga að einhverju til viðbótar til að geta boðið gistingu hjá Airbnb.org?
Alls ekki. Gjaldfrjálst neyðarhúsnæði í gegnum Airbnb.org hjálpar gestum að finna skammtímagistingu í eignum líkt og þinni í kjölfar hamfara, veikinda eða neyðarástands. Oftast er það einfaldlega alúðin sem þú hefur lagt í að gera eignina notalega sem veitir fólki mesta huggun á erfiðum tímum. Þú þarft ekki að gera neitt sérstakt til viðbótar fyrir gesti Airbnb.org en ef þú vilt hjálpa getur þú boðið afslátt af skráningu þinni þegar um neyðargistingu er að ræða.
Þarf ég að skrá mig sérstaklega til að taka á móti gestum í gegnum Airbnb.org?
Þú þarft ekki að skrá þig sérstaklega. Gestir sem gista hjá Airbnb.org þegar hamfarir eða neyð steðjar að geta bókað hvaða skráningu sem er á Airbnb. Allir gestir sem bóka þurfa að hafa staðfest auðkenni rétt eins og aðrir gestir Airbnb.














