Jarðskjálfti í Kumamoto
Airbnb.org á í samstarfi við Peace Boat Disaster Relief Center, Peace Winds Japan og Japan Platform til að sinna hjálparstarfi á þeim svæðum sem urðu illa úti í jarðskjálftanum. Eftir því sem hjálparstarfi og -aðgerðum vindur áfram munu Airbnb.org og góðgerðasamtök vinna náið saman að því að finna skilvirkustu leiðirnar til að styðja við starfið á vettvangi og veita fólki sem á um sárt að binda vegna jarðskjálftans tímabundið húsnæði.
Þú getur styrkt Airbnb.org ef þú vilt hjálpa til við að útvega fólki sem hefur þurft að líða fyrir jarðskjálftann gistingu að kostnaðarlausu. Allir styrkir renna óskiptir til fjármögnunar á neyðarhúsnæði. Ef þú ert gestgjafi á Airbnb getur þúskráð þig til að bjóða fólki í vanda gistingu með afslætti. Airbnb gefur þjónustugjöld sem innheimt eru af gestgjöfum fyrir slíka gistingu til Airbnb.org og gestgjafar í Japan halda áfram að njóta verndar japönsku gestgjafatryggingarinnar fyrir hverja bókun.