Aubenas-stormar
Airbnb.org veitir fólki sem hefur neyðst til að yfirgefa heimili sín vegna aftakaveðurs og haglhríðar í Ardèche-héraði í Frakklandi, gjaldfrjálst neyðarhúsnæði í samstarfi við Mairie d'Aubenas sem hjálpa til við að finna íbúa í neyð og vísa þeim áfram til gestgjafa á svæðinu.Miðvikudaginn 15. júlí urðu Aubenas, Vals-les-Bains og Lalevade-d'Ardèche fyrir aftakaveðri með miklu úrhelli og hagléli . Risahagl olli gríðarlegu tjóni á heimilum, þökum og bifreiðum sem leiddi til skyndiflóða á öllu svæðinu. Íbúar sem eiga um sárt að binda vegna óveðursins geta sótt beint um húsnæði sé aðalheimili þeirra innan rýmingarsvæðis og við getum staðfest auðkenni viðkomandi. Þú þarft að vera með aðgang að Airbnb til að hægt sé að staðfesta auðkenni þitt. Hafir þú ekki aðgang getur þú stofnað hann hér. Ef yfirvöld hafa aðeins gefið út viðvörun um mögulega rýmingu uppfyllir þú ekki skilyrðin fyrir neyðarhúsnæði í gegnum Airbnb.org að svo stöddu.
Þú getur styrkt Airbnb.org ef þú vilt hjálpa að útvega fólki sem hefur þurft að líða fyrir óveðrið gistingu að kostnaðarlausu. Allir styrkir renna óskiptir til fjármögnunar á neyðarhúsnæði. Ef þú ert gestgjafi á Airbnb getur þú skráð þig til að bjóða fólki í vanda gistingu með afslætti. Airbnb gefur þjónustugjöld gestgjafa til Airbnb.org fyrir slíka gistingu og sér til þess að gestgjafar njóti verndar AirCover fyrir hverja bókun.