Jarðskjálfti á Filippseyjum

Júní 2026

Airbnb.org vinnur með Save the Children við að útvega fólki sem hrakist hefur að heiman vegna jarðskjálftans á Filippseyjum gjaldfrjálst neyðarhúsnæði. Íbúar sem eiga um sárt að binda vegna jarðskjálftans geta sótt beint um húsnæði sé aðalheimili þeirra innan rýmingarsvæðis og ef við getum staðfest auðkenni viðkomandi. Þú þarft að vera með aðgang að Airbnb til að hægt sé að staðfesta auðkenni þitt. Hafir þú ekki aðgang getur þú stofnað hann hér. Ef þú hefur fengið tilkynningu eða viðvörun um rýmingu átt þú ekki rétt á neyðarhúsnæði í gegnum Airbnb.org að svo stöddu.

Leiðir til að hjálpa

Þú getur styrkt Airbnb.org ef þú vilt leggja þitt af mörkum við að útvega fólki sem hefur þurft að líða fyrir jarðskjálftana gistingu að kostnaðarlausu. Allir styrkir renna óskiptir til fjármögnunar á neyðarhúsnæði. Ef þú ert gestgjafi á Airbnb getur þú skráð þig til að bjóða fólki í vanda gistingu með afslætti. Airbnb gefur þjónustugjöld gestgjafa til Airbnb.org fyrir slíka gistingu og sér til þess að gestgjafar njóti verndar AirCover fyrir hverja bókun.

Hefurðu einhverjar spurningar?

Vinsamlegast hafðu samband á contact@airbnb.org