Hvirfilbyljir í Oklahoma

Apríl 2026

Airbnb.org vinnur með Heartline 211 og neyðarstjórnunardeild Oklahoma, Oklahoma Department of Emergency Management, að því að útvega fólki sem hefur þurft að yfirgefa heimili sín vegna hvirfilbyljanna gjaldfrjálst neyðarhúsnæði. HeartLine nýtir símalínuna 211 Community Resource Line til að finnaíbúa sem þurfa á tímabundnu neyðarhúsnæði að halda og vísa þeim áfram til Airbnb.org í samráði við neyðarstjórnunardeild Oklahoma.Íbúar sem eiga um sárt að binda vegna hvirfilbyljanna í Norður-Oklahoma geta óskað eftir aðstoð við að komast í tímabundið húsnæði með því að hringja í síma 211. Símalína 211 er opin allan sólarhringinn og veitir gjaldfrjálsa og trúnaðarbundna þjónustu við að tengja einstaklinga og fjölskyldur við nauðsynlega samfélagsþjónustu, svo sem skjól, mataraðstoð, neyðaraðstoð og geðheilbrigðisaðstoð.

Leiðir til að hjálpa

Þú getur styrkt Airbnb.org ef þú vilt hjálpa að útvega fólki sem hefur þurft að líða fyrir hvirfilbyljina gistingu að kostnaðarlausu. Allir styrkir renna óskiptir til fjármögnunar á neyðarhúsnæði. Ef þú ert gestgjafi á Airbnb getur þú skráð þig til að bjóða fólki í vanda gistingu með afslætti. Airbnb gefur þjónustugjöld gestgjafa til Airbnb.org fyrir slíka gistingu og sér til þess að gestgjafar njóti verndar AirCover fyrir hverja bókun.

Hefurðu einhverjar spurningar?

Vinsamlegast hafðu samband á contact@airbnb.org