Gróðureldar í Nýju-Suður-Wales
Airbnb.org vinnur með Convoy of Hope við að útvega fólki sem hefur þurft að líða fyrir gróðureldana í Nýju-Suður-Wales, Ástralíu, neyðarhúsnæði að kostnaðarlausu. Íbúar sem eiga um sárt að binda vegna gróðureldanna geta sótt um húsnæði hjá Convoy of Hope sé aðalheimili þeirra innan rýmingarsvæðis og við getum staðfest auðkenni viðkomandi. Þú þarft að vera með aðgang að Airbnb til að hægt sé að staðfesta auðkenni þitt. Ef þú ert ekki með aðgang getur þú stofnað hann hér.
Þú getur styrkt Airbnb.org ef þú vilt hjálpa að útvega fólki sem hefur þurft að líða fyrir gróðureldana gistingu að kostnaðarlausu. Allir styrkir renna óskiptir til fjármögnunar á neyðarhúsnæði. Ef þú ert gestgjafi á Airbnb getur þú skráð þig til að bjóða fólki í vanda gistingu með afslætti. Airbnb gefur þjónustugjöld gestgjafa til Airbnb.org fyrir slíka gistingu og sér til þess að gestgjafar njóti verndar AirCover fyrir hverja bókun.