Flóð í Norður-Michigan

Airbnb.org vinnur með Michigan 211 við að útvega fólki sem hefur neyðst til að yfirgefa heimili sín vegna flóðanna í Norður-Michigan, BNA, neyðarhúsnæði að kostnaðarlausu.Íbúar sem eiga um sárt að binda vegna flóðanna geta haft samband við Michigan 211 til að óska eftir neyðarhúsnæði ef aðalheimili þeirra er innan svæðis þar sem yfirvöld hafa fyrirskipað rýmingu. Ef yfirvöld hafa aðeins gefið út viðvörun um mögulega rýmingu uppfyllir þú ekki skilyrðin að svo stöddu.Fjölskyldur í neyð sem uppfylla skilyrðin geta haft samband við Michigan 211 með því að hringja í síma 211 eða senda póstnúmerið sitt í textaskilaboðum á 898211 til að ræða við fulltrúa.

Leiðir til að hjálpa

Þú getur styrkt Airbnb.org ef þú vilt leggja þitt af mörkum við að útvega kostnaðarlausa gistingu fyrir fólk sem á um sárt að binda vegna flóðanna. Allir styrkir renna óskiptir til fjármögnunar á neyðarhúsnæði. Ef þú ert gestgjafi á Airbnb getur þú skráð þig til að bjóða fólki í vanda gistingu með afslætti. Airbnb hefur engar tekjur af gistingu á Airbnb.org og sér til þess að gestgjafar njóti verndar AirCover fyrir hverja bókun.

Hefurðu einhverjar spurningar?

Vinsamlegast hafðu samband á contact@airbnb.org