Cebu, Filippseyjar

Gestgjafar styðja viðbragðsaðila á Filippseyjum

Óvænt gisting á Airbnb.org leiðir til þess að gestir og gestgjafar ná betri árangri saman í kjölfar eyðileggingar eftir jarðskjálfta
Tveir gestgjafar sitja hlið við hlið á sófa og brosa í myndavélina.

„Ég gleymi aldrei frásögn eins eftirlifenda. Hann sagði okkur hve hræddur hann var en að núna liði honum betur þar sem fjölskylda hans hefði öll lifað af. Það sama átti ekki við í nokkurra húsa fjarlægð. Heil fjölskylda lét lífið.“

- Raffy M., gestur Airbnb.org og framkvæmdastjóri Angat Buhay

Rétt fyrir klukkan 22 að kvöldi 30. september 2025, reið öflugur 6,9 stiga jarðskjálfti yfir norðurhluta Cebu-héraðs á Filippseyjum. Sjötíu og níu manns létu lífið. Skjálftinn hafði áhrif á meira en 128.000 fjölskyldur og meira en 18.000 heimili skemmdust. Að minnsta kosti 3.500 þeirra gjöreyðilögðust.

Bygging sem hrundi vegna 6,9 stiga jarðskjálfta í Cebu á Filippseyjum.
Fjölmenna teymið hjá Angat Buhay—filippseyskum góðgerðarsamtökum sem vinna með Airbnb.org út frá hugmyndinni um bayanihan eða samfélagsviðbrögð og samheldni—byrjaði að útdeila hjálpargögnum til fólks á svæðinu sama kvöld.Raphael (“Raffy”) M., framkvæmdastjóri Angat Buhay, leiddi för sjálfboðaliða á hamfarasvæðið og þau veittu hjálp með því að dreifa hreinlætispökkum, koma fólki í læknishendur eftir þörfum og allt þar á milli.
Sjálfboðaliðar frá góðgerðasamtökunum Angat Buhay úthluta mat og hjálpargögnum til íbúa í Cebu á Filippseyjum í kjölfar 6,9 stiga jarðskjálfta.

„Við höfum ekki fundið fyrir svona sterkum jarðskjálfta í langan tíma svo að þetta var eiginlega súrrealískt og við vissum ekki hvernig við ættum að bregðast við. Allar byggingarnar í Cebu hristust harkalega.“

- Pau G., gestgjafi á Airbnb.org

Gestgjafarnir Mia S. og Pau G. voru heima hjá sér í Cebu City þegar fyrsti skjálftinn skók allt. Þrátt fyrir að eyðileggingin hafi verið minni í Cebu City en fyrir norðan fundu Mia og Pau samt vel fyrir honum. Þau voru hrædd um fjölskyldumeðlimi sína og gesti.Þegar þau fréttu meira um eyðilegginguna fyrir norðan vildu Mia og Pau hjálpa eins mikið og þau gátu. Þau reyndu að hafa samband við Angat Buhay á eigin spýtur til að bjóða hjálp eða leggja þeim lið en stuttu síðar fengu þau tilkynningu um að eignin þeirra hefði verið bókuð fyrir gistingu á Airbnb.org.

Eyðilagt heimili í kjölfar 6,9 stiga jarðskjálfta í Cebu á Filippseyjum.
Mia S., gestgjafi á Airbnb.org, faðmar Menard, gest sinn á Airbnb.org, sem kom til hennar í gegnum filippseysku góðgerðasamtökin Angat Buhay.
Þegar gestirnir komu urðu Mia og Pau hissa—þetta voru viðbragðsaðilar frá Angat Buhay. Sama fólkið og þau höfðu reynt að ná sambandi við. „Ótrúleg tilviljun olli því að sömu samtök og við vonuðumst til að ná sambandi við gistu á heimilum okkar,“ sagði Mia.Mia og Pau voru ánægð að geta veitt teyminu frá stærstu sjálfboðasamtökum landsins skjól þegar teymið frá Angat Buhay kom til þeirra.

„Þetta er mikil hjálp fyrir lítil samtök, einkum fyrir sjálfseignarstofnanir með takmörkuð úrræði. Fjármunir þeirra ættu að renna til þeirra sem á aðstoð þurfa að halda... til þarfa samfélagsins.“

- Menard, gestur Airbnb.org og starfsmaður Angat Buhay

Hann sagði að við veitingu aðstoðar áður fyrr hafi sjálfboðaliðar og starfsfólk stundum þurft að sofa á beru gólfi skrifstofa og án rúmfata til að spara pening. Einnig var stundum gengið frá því að teymi gistu á hótelum en það jók kostnaðinn mikið.Í þetta sinn var allt ólíkt þar sem hann og aðrir viðbragðsaðilar frá Angat Buhay fengu neyðarhúsnæði að kostnaðarlausu í gegnum Airbnb.org. Það gaf þeim frið eftir 14 til 16 klukkustunda vettvangsvinnu og þýddi að fjármunir þeirra nýttust fyrst og fremst fólki sem átti um bágt að binda.

Sjálfboðaliði frá Angat Buhay réttir ungu barni hjálpargögn í kjölfar 6,9 stiga jarðskjálfta í Cebu á Filippseyjum.

„Að hjálpa öðrum án þess að búast við neinu í staðinn. Þetta er filippseyskur eiginleiki.“

- Pau G., gestgjafi á Airbnb.org

Á Filippseyjum er bayanihan meira en bara orð. Undirstaðan er að gefa og deila byrðinni — ekki bara sem einstaklingur heldur sem samfélagið allt.Mia sagði að „Airbnb.org sýndi okkur að við höfum úrræði sem við getum lagt fram í neyð.“

Menard, gestur á Airbnb.org, situr á sófa með gestgjöfunum sínum á Airbnb.org, Miu S. og Pau G., og brosir í myndavélina.

Mia og Pau vona að saga þeirra hvetji annað fólk til að gerast gestgjafi á Airbnb.org. Þau tóku meira að segja þátt í vettvangsstarfi Angat Buhay með Raffy eftir að hann gisti hjá þeim.Mia og Pau telja gestaumsjónina vera í anda bayanihan bæði á Filippseyjum og víðar.

Leggja mitt af mörkum

Vertu hluti af alþjóðasamfélagi fólks sem veitir athvarf á neyðarstundu.

Frekari upplýsingar

Hver dvöl á sér sína sögu

Kynnstu fólkinu sem hefur þurft að líða fyrir hamfarir og þeim sem réttu fram hjálparhönd.