Sjúkragisting á Spáni

Öruggt skjól fyrir Marcos

Kona og sonur hennar sitja hlið við hlið á tröppum sem liggja að gistieign þeirra á Airbnb og brosa til myndavélarinnar.

„Þetta er griðarstaður, samastaður þar sem þú getur verið í næði ásamt fjölskyldunni og átt stundir utan sjúkrahússins“.

- Marcos, gestur Airbnb.org

Þegar Marcos var aðeins 14 ára gamall fundu læknar á Spáni níu sentímetra æxli — á stærð við stórt greipaldin — í mjaðmagrind hans. Greiningin var Ewing-sarkmein, beinkrabbamein sem kemur oftast fram hjá börnum á aldrinum 10 til 20 ára og lífið eins og Marcos þekkti það gjörbreyttist. Marcos og móðir hans, Maria, vörðu stórum hluta næstu þriggja ára í að ferðast til Madríd til að Marcos gæti fengið viðeigandi meðferð og læknisaðstoð. Lífið einkenndist af endurteknum læknaheimsóknum, krabbameinslyfjameðferð, geislameðferð og ótalmörgum læknisrannsóknum. Þau bjuggu í Burgos sem var í þriggja klukkustunda fjarlægð ásamt eiginmanni og dóttur Mariu en það var alltof löng vegalengd fyrir dreng með sjaldgæfa og ágenga tegund krabbameins. „Ewing-sarkmein veldur því að þótt barnið fái aðeins lágan hita þarf að leggja það inn því það getur verið banvænt,“ sagði Maria. Á fyrsta ári meðferðarinnar fengu Marcos og Maria aðeins að fara einu sinni heim í tilefni afmælis eiginmanns hennar í maí.

Kona er að setja í uppþvottavélina í eldhúsinu á meðan sonur hennar situr á sófanum í stofunni.

Stuðningsnet til staðar í MadrídÞegar Marcos og Maria voru ekki á sjúkrahúsinu í byrjun meðferðarinnar í Madríd, kynntust þau öðrum fjölskyldum og börnum í læknismeðferð í gegnum Ronald McDonald House. „Það var indælt því þarna kynntist maður fólki sem virkilega skyldi hvað við vorum að ganga í gegnum,“ sagði Maria. „Vegna þess að þessar fjölskyldur voru að ganga í gegnum það sama, jafnvel þótt tegund krabbameinsins væri önnur.“ Þótt þetta stuðningsnet væri gríðarlega mikilvægt fyrir mæðginin kom að því að það varð nauðsynlegt fyrir andlega heilsu Marcos að finna annað gistiúrræði. Þau byrjuðu að bóka gistingu í gegnum Airbnb.  Til að byrja með greiddi Maria gistinguna úr eigin vasa en fjárhagsbyrðin varð henni sífellt þyngri þar til Aladina Fundación benti henni á Airbnb.org.

Kona situr á sófa með syni sínum sem leggur höfuðið í kjöltu hennar.

Öðruvísi meðal — heimilisleg þægindi þegar mest á reynirAirbnb.org á í samstarfi við samtök á borð við Aladina Fundación á Spáni til að útvega fjölskyldum og einkstalingum sem ferðast til að sækja sér læknishjálp fjarri heimilinu skammtímahúsnæði að kostnaðarlausu. „Sonur minn veitir mér styrk,“ sagði Maria um son sinn. „Eftir ótalmörg bakslög og margra ára baráttu hefur sonur minn verið mér fyrirmynd“.Dvalir líkt og þessi eru mögulegar þökk sé stuðningi styrktaraðila Airbnb.org sem léttir undir foreldrum eins og Mariu og veitir sjúklingum eins og Marcos huggun.

Kona og sonur hennar sitja á sófa og hlæja og brosa.

„Það er ómetanlegt að hafa stað þar sem þér líður líkt og heima hjá þér, stað til að slaka á og sem er rétt hjá sjúkrahúsinu“.

- Maria, gestur Airbnb.org

Marcos kann fyrst og fremst að meta kyrrðina og róna sem heimili í gegnum Airbnb.org veitir honum.Hann segir sjálfur að gisting hjá Airbnb.org sé „það sem kemst næst því að vera heima“.

Leggja þitt af mörkum

Vertu hluti af alþjóðasamfélagi fólks sem veitir athvarf á neyðarstundu.

Frekari upplýsingar

Hver dvöl á sér sína sögu

Kynnstu fólki sem hefur þurft að líða fyrir hamfarir og þeim sem réttu fram hjálparhönd.