Stormar í Kona á Havaí

Gæludýravænt skjól í kjölfar flóða

Maile og Kai náðu að halda allri fjölskyldunni saman — að hundunum meðtöldum — í verstum flóðum sem dunið hafa yfir Havaí á síðustu 20 árum.
Maile og hundarnir hennar þrír sitja á sófanum þar sem þau gista hjá Airbnb.org.

„Vatnið tók allt“.

- Maile, gestur Airbnb.org

Skömmu eftir miðnætti 20. mars 2026 vöknuðu Maile og Kai við óveður sem geisaði. Þau fóru fram úr til að færa bílana sína upp á hærra svæði, grunlaus um að þau hefðu innan við hálftíma til að bjarga því sem bjargað varð af eigum sínum og flýja.

„Við höfðum bara rétt um 10 mínútur til að koma okkur út.“

- Maile, gestur Airbnb.org
Kona með gula havaírós í hári sínu teygir sig yfir viðarhandrið á verönd og sýnir hversu hátt vatnið náði á grindverkinu

Hjörðinni haldið samanVatnið var fljótt að safnast upp. Um leið og Maile og Kai áttuðu sig á því að það myndi ekki stoppa voru þau fljót að flýja með ástkæru „úlfahjörðinni“ sinni eins og Maile kallar hundana þeirra fimm: Blackie, Tiny, Noelle, Sassy og Choncho. Það kom ekki til greina að fara án þeirra.„Við náðum í hundana áður en við fórum einu sinni að hugsa út í að pakka fötum í poka. Hundarnir voru í algjörum forgangi.“ - KaiÞegar Maile og Kai voru loks komin með alla fimm hundana upp í bílinn var flóðvatnið komið upp að vélarhlífinni og straumurinn svo sterkur að hann ýtti bílnum til hliðar. Þvert á allar líkur hélst vélin gangandi nógu lengi til að Kai og Maile kæmust undan flóðinu og til öruggari vega þótt enn meiri óvissa tæki þá við.

Tímabundið heimili þar sem þau gátu hvílt fætur og loppurÍ kjölfar óveðursins lýsti Josh Green, ríkisstjóri Havaí, flóðunum sem þeim verstu sem skollið hafa á Havaí frá árinu 2004.  Þegar Maile og Kai snéru aftur til heimilis síns í Hale'iwa daginn eftir blasti við þeim að flóðvatnið hafði náð nokkurra feta hæð í húsinu. Tjónið var gífurlegt og afleiðingarnar hrikalegar.

Kona stendur inni á heimili þar sem timburstoðir veggja eru bersýnilegar í kjölfar skemmda af völdum óveðurs

Maile og Kai treystu á samfélagið í kringum þau. Parinu var ómögulegt að dvelja á heimili sínu og reiddi sig því á vini og vandamenn fyrir þak yfir höfuðið og hjálp við að hugsa um dýrin. Að lokum fundu þau ró og næði í gegnum Airbnb.org. Þau bókuðu kostnaðarlausa gistingu sem gerði þeim kleift að halda fjölskyldunni saman á þurrum og öruggum stað. „Það var frábær tilfinning að þurfa ekki að velja á milli öryggis okkar og hundanna því við fengum hvort tveggja, ekki satt? Það er ómetanlegt að geta haft þá hjá okkur og haldið þannig allri fjölskyldunni saman.“ - Kai

Maður og kona sitja saman brosandi á rúmi og tveir hundar, annar brúnn og hinn svartur, stökkva upp í til þeirra.

Maile og Kai ákváðu að taka aðeins með sér þrjá af hundum sínum fimm af tillitsemi við gestgjafa þeirra hjá Airbnb.org. Góðir vinir þeirra tóku að sér að hugsa um hina tvo meðlimi úlfahjarðarinnar.

Mikilvægi gæludýravænnar gistiaðstöðuÞað skipti sköpum fyrir Maile að geta haft hundana hjá sér, bæði þar sem þau dvöldu hjá Airbnb.org eða öðrum fjölskyldumeðlimum. Það var mikilvægur liður í að geta byrjað að vinna úr áfallinu sem óveðrið olli. „Það var sannkölluð blessun að fá þessa gistingu. Ef ég yrði einhvern tímann viðskila við hundana mína myndi það valda mér mikilli vanlíðan. Ég held ég gæti aldrei afborið það.“ - Maile

Maður og kona sitja saman á tröppum á verönd og eru umkringd þremur hundum, einum litlum og loðnum, einum tígróttum og einum ljósbrúnum chihuahua-hundi. Fyrir aftan þau er hús sem hefur skemmst.

Þökk sé stuðningi örlátra styrktaraðila og gestgjafa býður Airbnb.org upp á gæludýravænt neyðarhúsnæði þar sem allir fjölskyldumeðlimir geta dvalið saman í kjölfar náttúruhamfara og annars neyðarástands. Fjölskyldur á borð við fjölskyldu og Maile og Kai.Um það bil 5.000 manns var gert að yfirgefa norðurströnd O'ahu í kjölfar vetrarstormanna í mars. Airbnb.org útvegaði meira en 220 gestum gjaldfrjálst neyðarhúsnæði í 597 nætur samanlagt„Airbnb.org hjálpaði fjölmörgum á svæðinu sem við vitum að misstu heimili sín.“ - Kai

Leggja þitt af mörkum

Vertu hluti af alþjóðasamfélagi fólks sem veitir athvarf á neyðarstundu.

Frekari upplýsingar

Hver dvöl á sér sína sögu

Kynnstu fólki sem hefur þurft að líða fyrir hamfarir og þeim sem réttu fram hjálparhönd.