Flóð í Kittredge
Airbnb.org vinnur með Mile High United Way við að útvega fólki sem hefur neyðst til að yfirgefa heimili sín vegna flóðanna í Kittredge, neyðarhúsnæði að kostnaðarlausu.Íbúar sem eiga um sárt að binda vegna flóðanna geta sótt beint um húsnæði ef aðalheimili þeirra er innan svæðis þar sem yfirvöld hafa fyrirskipað rýmingu og við getum staðfest auðkenni viðkomandi. Þú þarft að vera með aðgang að Airbnb til að hægt sé að staðfesta auðkenni þitt. Hafir þú ekki aðgang getur þú stofnað hann hér. Ef yfirvöld hafa aðeins gefið út viðvörun um mögulega rýmingu uppfyllir þú ekki skilyrðin fyrir neyðarhúsnæði í gegnum Airbnb.org að svo stöddu.
Þú getur styrkt Airbnb.org ef þú vilt hjálpa til við að útvega fólki sem á um sárt að binda vegna flóðanna gjaldfrjálsa gistingu. Allir styrkir renna óskiptir til fjármögnunar á neyðarhúsnæði. Ef þú ert gestgjafi á Airbnb getur þú skráð þig til að bjóða fólki í vanda gistingu með afslætti. Airbnb gefur þjónustugjöld gestgjafa til Airbnb.org fyrir slíka gistingu og sér til þess að gestgjafar njóti verndar AirCover fyrir hverja bókun.