Svör við spurningum ykkar varðandi Airbnb.org.
Airbnb.org útvegar fólki gjaldfrjálst neyðarhúsnæði í kjölfar náttúruhamfara og annars neyðarástands. Við höfum gert nokkrar breytingar á starfi okkar í gegnum árin og því svörum við nokkrum algengum spurningum sem við fáum frá gestgjöfum.

Hvernig virkar Airbnb.org?
Við stígum inn í aðstæður á neyðarstundum, t.d. í kjölfar náttúruhamfara eða ferðalaga vegna lífsnauðsynlegra læknismeðferða. Airbnb.org hjálpar fólki sem á um sárt að binda að finna gjaldfrjálsa neyðargistingu á Airbnb.
Leggja mitt af mörkum1 af 1 síðum
Svör við algengum spurningum um hvernig Airbnb.org virkar.
Fá gestgjafar eftir sem áður greitt?
Já, gestgjafar fá greitt rétt eins og fyrir aðrar bókanir þar sem Airbnb.org greiðir fyrir neyðargistinguna.
Þarf ég að skrá mig sérstaklega til að taka á móti gestum Airbnb.org?
Þú þarft ekki að skrá þig sérstaklega. Gestir Airbnb.org geta bókað hvaða heimili sem er á Airbnb. Þú færð tilkynningu í appinu ef einhver sem gistir á vegum Airbnb.org bókar eignina þína. Airbnb.org greiðir fyrir gistinguna sem veitir gestum frelsi til að bóka það heimili sem hentar þeim best. Þetta þýðir að gestir okkar geta gist nálægt skóla, vinnustað, heilbrigðisstofnun eða heimilum sínum á meðan unnið er að viðgerðum í kjölfar skemmda.
Þarf að leggja meiri vinnu í að bjóða gistingu á Airbnb.org?
Nei, þú þarft ekki að gera neitt aukalega. Eignin þín getur nýst fjölskyldum sem ganga í gegnum erfiða tíma, með þægindum eins og þvottaaðstöðu, eldhúsi fyrir heimalagaðar máltíðir og plássi þar sem börnin eða gæludýrin geta leikið sér.
Hvernig geta gestgjafar lagt Airbnb.org lið?
Gestgjafar geta styrkt Airbnb.org á nokkra vegu. Veitt beint styrktarframlag til Airbnb.org þar sem allir styrkir renna óskiptir til fjármögnunar á gjaldfrjálsu neyðarhúsnæði. Sums staðar geta gestgjafar breytt aðgangsstillingum sínum til að gefa fastan hluta af hverri útborgun á Airbnb eða boðið afslátt af gistingu fyrir gesti Airbnb.org.
Stuðningur við þig
Þegar þú býður gistingu á Airbnb.org hefur þú aðgang að allri þeirri aðstoð sem þú hefur vanist sem gestgjafi á Airbnb og aðeins meira til. Þú nýtur verndar AirCover fyrir gestgjafa og hefur aðgang að sérhæfðu þjónustuveri Airbnb.org. Samstarfsaðilar okkar á staðnum finna fólk sem þarfnast aðstoðar og hjálpa því svo að bóka skammtímagistingu í gegnum Airbnb appið þar sem staðfesting á auðkenni þess fer fram, rétt eins og fyrir venjulega gistingu.
Heyrðu frá gestgjöfum Airbnb.org
1 af 1 síðum






