Íbúðabruni í Hilo
Airbnb.org vinnur með Catholic Charities USA að því að útvega fólki sem á um bágt að binda vegna íbúðabrunans í Hilo, Hawaii, neyðarhúsnæði að kostnaðarlausu. Íbúar sem hafa orðið fyrir áhrifum af íbúðabrunanum geta sótt um húsnæði hjá Catholic Charities USA. Samkvæmt kröfum til að fá húsnæði þurfum við að staðfesta að aðalheimili þitt sé innan áhrifasvæðisins sem og auðkenni þitt. Þú þarft að vera með aðgang að Airbnb til að hægt sé að staðfesta auðkenni þitt. Ef þú ert ekki með aðgang getur þú stofnað hann hér.
Þú getur styrkt Airbnb.org viljir þú hjálpa fólki sem hefur þurft að líða fyrir íbúðabrunann að fá gistingu að kostnaðarlausu. Allir styrkir renna óskiptir til fjármögnunar á neyðarhúsnæði. Ef þú ert gestgjafi á Airbnb getur þú skráð þig til að bjóða fólki í vanda gistingu með afslætti. Airbnb gefur þjónustugjöld gestgjafa til Airbnb.org fyrir slíka gistingu og sér til þess að gestgjafar njóti verndar AirCover fyrir hverja bókun.