Leið Ellie til sjálfstæðis

„Airbnb.org sá mér og fjölskyldu minni fyrir gistingu þegar við ferðuðumst vegna sjúkraþjálfunar. Við erum afar þakklát fyrir aðstoðina og stuðninginn.“
Listakonan Ellie Dean er með hlutaskaða á mænu. Fyrir milljónir manna eins og Ellie, sem þurfa á sérhæfðri umönnun að halda, eru meðferðarúrræði nálægt heimili annaðhvort ekki til staðar eða ekki næg til að mæta þörfum þeirra. Þegar þessir einstaklingar þurfa að ferðast langt að heiman gerir sjúkragisting Airbnb.org sjúklingum kleift að dvelja nærri viðkomandi sjúkrastofnun.

Í bataferli sínu hefur Ellie ferðast um allt Bretland og jafnvel til Bandaríkjanna til að fara í meðferð. Móðir hennar og faðir ferðast með henni. Hún minnist þess þegar faðir hennar svaf úti í bíl vegna þess að aðeins annað foreldrið mátti vera hjá henni á sjúkrahúsinu og þau höfðu komið langt að. Í nýlegri heimsókn til Liverpool, sem er í fjögurra klukkustunda akstursfjarlægð frá heimili fjölskyldunnar nærri Stevenage, gerði sjúkragisting Airbnb.org öllum kleift að dvelja saman í þægilegu rými.
Aðgerðin sem breytti ölluBataferli Ellie hófst fyrir meira en áratug síðan, eftir að læknar í Bretlandi fundu æxli á stærð við litla vatnsmelónu í brjóstkassa hennar. Æxlið þrýsti á hrygg hennar. Það hafði verið þarna árum saman og vaxið án þess að nokkur tæki eftir því, enda á stað sem erfitt var að sjá. Og það var næstum búið að svipta hana öllu.

Fylgikvillar við skurðaðgerðina til að fjarlægja æxlið leiddu til mikils blóðmissis úr stórri slagæð.
„Þetta [blóðmissirinn] olli eins konar mænuslagi og síðan skemmdum á mænunni sem leiddu til mænuskaða.“
Ellie var 14 ára þegar hún vaknaði eftir aðgerðina og fékk að vita að læknunum hefði tekist að fjarlægja æxlið. En hún hafði ekki lengur fulla tilfinningu í fótleggjunum. Aðgerðin olli því að hún lamaðist fyrir neðan mitti.
Leiðin til sjálfstæðisÞegar maður hittir Ellie í dag verður eitt ljóst umfram allt annað: Hún er baráttukona. Hún lýsir sér sem vingjarnlegri, skapandi og ákveðinni. Þessi ákveðni skín í gegn í nálgun hennar á sjúkraþjálfun.

Ellie er með hlutaskaða á mænu sem þýðir að hún hefur enn einhverja tilfinningu í fótleggjunum. Hún gat hreyft tærnar snemma og önnur merki bentu til þess að hún gæti endurheimt meiri styrk með tímanum. Læknar hennar voru bjartsýnir. Og það var full ástæða til.Áratug síðar sinnir Ellie sjúkraþjálfun sinni af einurð. Hún gengur með göngugrind og spelkur, en fætur hennar gefa sig samt stundum undan henni. Hún er að skipta yfir í vélknúna C-spelku sem mun hjálpa henni að ná lokamarkmiði sínu um aukið sjálfstæði. Hún vonast til að geta einn daginn stuðst við hækjur.

Airbnb.org gerir gæfumuninnAirbnb.org vinnur með góðgerðasamtökum á borð við Rooprai Spinal Trust í Bretlandi til að útvega gestum eins og Ellie þægilegt og aðgengilegt húsnæði þegar þeir þurfa að dvelja fjarri heimili sínu vegna læknismeðferðar. Airbnb.org fjármagnar sjúkragistingu að fullu svo fólk geti einbeitt sér að því sem skiptir mestu máli meðan á meðferð stendur.

„Mér finnst [Airbnb.org] frábært af því að ég get tekið listadótið með mér og sinnt listinni aðeins meðfram sjúkraþjálfuninni.“
Hver dvöl á sér sína sögu
Kynnstu fólki sem hefur þurft að líða fyrir hamfarir og þeim sem réttu fram hjálparhönd.




