Skógareldar í Kóloradó
Airbnb.org vinnur með Mile High United Way við að útvega fólki sem hrakist hefur að heiman vegna Aspen Acres-eldsvoðans, Ferris og Doe Canyon-eldsvoðans, Gold Mountain-eldsvoðans, Snyder-eldsvoðans og Willow-eldsvoðans gjaldfrjálst neyðarhúsnæði.Íbúar sem eiga um sárt að binda vegna skógareldanna geta sótt beint um húsnæði sé aðalheimili þeirra innan rýmingarsvæðis og við getum staðfest auðkenni viðkomandi. Þú þarft að vera með aðgang að Airbnb til að hægt sé að staðfesta auðkenni þitt. Hafir þú ekki aðgang getur þú stofnað hann hér. Ef þú hefur fengið tilkynningu eða viðvörun um rýmingu átt þú ekki rétt á neyðarhúsnæði í gegnum Airbnb.org að svo stöddu.
Þú getur styrkt Airbnb.org ef þú vilt hjálpa til við að útvega fólki sem hefur þurft að líða fyrir skógareldana gistingu að kostnaðarlausu. Allir styrkir renna óskiptir til fjármögnunar á neyðarhúsnæði. Ef þú ert gestgjafi á Airbnb getur þú skráð þig til að bjóða fólki í vanda gistingu með afslætti. Airbnb gefur þjónustugjöld gestgjafa til Airbnb.org fyrir slíka gistingu og sér til þess að gestgjafar njóti verndar AirCover fyrir hverja bókun.