Flóð í Colorado

Airbnb.org vinnur með Mile High United Way að því að útvega neyðarhúsnæði að kostnaðarlausu fyrir fólk sem hefur neyðst til að yfirgefa heimili sín vegna flóðanna í suðvesturhluta Colorado.

Leiðir til að hjálpa

Þú getur styrkt Airbnb.org ef þú vilt hjálpa til við að útvega fólki sem varð fyrir áhrifum af flóðunum í Colorado gjaldfrjálsa gistingu. Allir styrkir renna óskiptir til fjármögnunar á neyðarhúsnæði. Ef þú ert gestgjafi á Airbnb getur þú skráð þig til að bjóða fólki í vanda gistingu með afslætti. Airbnb tekur hvorki þjónustugjöld af gestgjöfum né gestum Airbnb.org. Gestgjafar sem bjóða heimili sitt í gegnum Airbnb.org njóta eignaverndar og ábyrgðartryggingar með AirCover fyrir hverja bókun.