Hjálpaðu til við að hýsa þá sem komust lífs af úr jarðskjálftanum
Þú getur veitt viðbragðsaðilum og fólki sem komst lífs af úr jarðskjálftunum í Tyrklandi og Sýrlandi aðstoð.
Gefðu styrk í dag

Húsaskjól á neyðarstund

Við eigum í samstarfi við samfélag okkar til að bjóða húsnæði í neyðartilvikum, allt frá náttúruhamförum til umfangsmikilla átaka.

Yfir 250.000 manns hafa fundið gistiaðstöðu á neyðartímum frá árinu 2012

Gestgjafar Airbnb bjóða aðstoð um allan heim þegar þörfin er mest. Við kynnum fólkið sem gerir það mögulegt.

Þökk sé alþjóðasamfélagi gestgjafa, styrktaraðilum og samstarfsaðilum, gat Airbnb.org veitt yfir 140.000 manns tímabundið húsnæði.

Hvernig Carmen og samfélag hennar komu saman eftir fellibylinn Maríu.

Við gerum fólki innan samfélagsins kleift að koma saman þegar hamfarir steðja að. Í þjónustu Airbnb.org getur fólk boðið þeim nágrönnum sínum sem neyðast til að yfirgefa heimili sín að gista ókeypis á heimilum sínum.

Airbnb.org hefur hjálpað 100.000 manns á flótta frá stríðinu að finna gistiaðstöðu.

Það getur tekið mörg ár fyrir samfélag að jafna sig að fullu eftir miklar hamfarir. Airbnb.org hjálpar til við að fjármagna gistingu hjálparstarfsfólks sem vinnur mikilvægt starf við að byggja aftur upp samfélög.

Að skapa heim sem allir tilheyra

Airbnb.org sér fyrir sér heim þar sem allir geta fundið sér hlýlega gistiaðstöðu á neyðartímum. Til að gera þessa hugsýn að veruleika hefur Airbnb.org einsett sér að framfylgja skuldbindingum varðandi fjölbreytni, jafnrétti, samkennd og aðgengi.

Við hjálpum öðrum góðgerðasamtökum að hafa varanleg áhrif.

Kynnstu nokkrum samstarfsaðilum sem hjálpuðu til við mótun Airbnb.org.
IRC bregst við verstu mannlegu hörmungum heims og hjálpar fólki sem missir lífsviðurværi sitt vegna átaka og hamfara að lifa af, jafna sig og ná stjórn á framtíð sinni.
Build Change eru samtök sem starfa við að koma í veg fyrir hamfarir og byggja upp og hanna viðráðanlegar húsnæðislausnir með samfélögum á hverjum stað.
HIAS eru alþjóðleg gyðingasamtök, sem ekki eru rekin í hagnaðarskyni, sem veita flóttamönnum, hælisleitendum og öðru fólki sem á ekki í önnur hús að venda um allan heim vernd og aðstoð.
Samtökin Community Sponsorship Hub skapa tækifæri fyrir samfélagshópa vítt og breitt um Bandaríkin til að taka á móti flóttafólki og fólki á vergangi.